14 CFR Non-U.S., Non-Commercial
Accident occurred Sunday, June 09, 2019 in Mulakot, Iceland
Aircraft: PIPER PA23, registration: N3294P
Injuries: 3 Fatal, 2 Serious.
The foreign authority was the source of this information.
The government of Iceland has notified the NTSB of an accident involving a PIPER PA23 airplane that occurred on June 09, 2019. The NTSB has appointed a U.S. Accredited Representative to assist the government of Iceland's investigation under the provisions of ICAO Annex 13.
All investigative information will be released by the government of Iceland.
Þrír eru látnir og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með þyrlum Landhelgisgæslunnar eftir flugslys við Múlakot í Fljótshlíð á Suðurlandi í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi er líðan þeirra slösuðu stöðug. Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglu barst tilkynning um klukkan 20:30 í kvöld um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot. Eldur var þá laus í flugvélinni. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunar Suðurlands var sent á staðinn, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og TF-EIR. Fimm voru um borð í flugvélinni.
Viðbragðsteymi Rauða krossins var sent á vettvang til að veita vitnum sálrænan stuðning.
„Við erum byrjaðir að rannsaka flakið, en því er ekki lokið. Rannsókn á flakinu, það er talsvert langt í land þar,“ svarar Ragnar spurður um stöðu rannsóknarinnar. Þá segir hann frumrannsókn slyssins, sem varð hjónum og syni þeirra að bana, enn í gangi.
„Flugvélin var ekki skráð á Íslandi, hún er á bandarískri skráningu,“ segir Ragnar. Spurður hvort skráning vélarinnar hafi lengt tíma sem tekur að safna gögnum fyrir frumrannsóknina, segir hann svo vera.
„Já, við erum komin með ákveðnar upplýsingar sem við vorum að fá í hendurnar frá bandarískum flugmálayfirvöldum. Eins og ég segi er þetta frumrannsókn og erum í þessari gagnaöflun og svo þarf að fara yfir það allt saman,“ svarar hann og bendir á að í framhaldi af frumrannsókn hefjist hin eiginlega rannsókn þar sem greining gagna og úrvinnsla fer fram.
Hafa ekki tekið afstöðu til bráðabirgðaskýrslu
Á vef rannsóknarnefndar samgönguslysa segir að nefndin geti gefið út skýrslu þar sem bráðabirgðaniðurstöður eru birtar. Er slík bráðabirgðaskýrsla birt um mánuði eftir vettvangsrannsókn, sem sagt er fyrsta stig rannsóknar eftir að tilkynning berst.
„Það hefur ekki verið tekin afstaða til þess hvort gefin verður út bráðabirgðaskýrsla. Nefndin hittist síðari hluta júlímánaðar og tekur þá ákvörðun um hvað hún hyggst gera,“ segir Ragnar og bætir við að það sé mjög sjaldan sem slík skýrsla er gefin út. „Við gerum það ekki nema talin sé brýn þörf á því að miðla upplýsingum.“
Hann segir að ekki megi búast við því að nokkuð verði gert opinbert um slysið á næstunni verði ákveðið að gefa ekki út bráðabirgðaskýrslu.
„En eins og ég segi er ekki búið að taka ákvörðun um bráðabirgðaskýrsluna. Annars er málið bara í þessum hefðbundna farvegi, það er frumrannsókn í gangi. Við höfum verið að safna að okkur hinum og þessum gögnum,“ bætir Ragnar við.
No comments:
Post a Comment